The Guardian ákvað að líta um öxl í fótboltalausa tímabilinu og skoða fimm leikmenn sem eiga það sameiginlegt að hafa átt eitt stórkostlegt tímabil en í kjölfarið ekki náð að fylgja því eftir. Skoðum lista Guardian.
Abou Diaby, Arsenal (2009-10) - Diaby skoraði sex mörk í 29 leikjum tímabilið 2009/2010 og virtist ætla að fylla skarðið sem Patrick Vieira hafði skilið eftir sig nokkrum árum áður. Meiðsli settu stórt strik í reikninginn næstu árin og Diaby fór frá Arsenal árið 2015.
Charlie Adam, Blackpool (2010-11) - Blackpool kom skemmtilega á óvart framan af tímabili en endaði á að falla. Charlie Adam skoraði tólf mörk og var tilnefndur sem leikmaður tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni. Skotinn fór til Liverpool í kjölfarið en náði aldrei flugi þar.
Marouane Fellaini, Everton (2012-13) - Belginn skoraði ellefu mörk þetta tímabilið með Everton og fylgdi í kjölfarið David Moyes til Manchester United. Þar náði ferill hans aldrei sömu hæðum.
Aaron Ramsey, Arsenal, (2013-14) - Tíu mörk og átta stoðsendingar í 23 leikjum. Ramsey náði ekki að fylgja því eftir næstu tímabil en meiðsli settu strik í reikninginn.
Athugasemdir