Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 21. apríl 2020 08:47
Magnús Már Einarsson
Stefnt á að mót meistara og yngri flokka hefjist 5. júní
Pepsi Max-deild karla hefst í kringum 14. júní.
Pepsi Max-deild karla hefst í kringum 14. júní.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
KSÍ hefur ákveðið að hefja undirbúning á því að keppni í mótum sumarsins geti hafist í júní, með þeim fyrirvara að staðan í þjóðfélaginu verði þá orðin þannig að Almannavarnir geti heimilað leikjum að fara fram.

Samkvæmt frétt á heimasíðu KSÍ í dag þá er stefnt á að hefja keppni í fyrstu umferð í Mjólkurbikarnum í kringum 5. júní en á svipuðum tíma hefjast mót yngri flokka.

Stefnt er á að keppni í Pepsi Max-deild karla hefjist um 14. júní og keppni í Pepsi Max-deild-kvenna tveimur dögum síðar. Önnur mót meistaraflokka hefjast 18-20. júní.

KSÍ hefur ákveðið að hefja undirbúning á því að keppni í mótum sumarsins geti hafist í júní, með þeim fyrirvara að staðan í þjóðfélaginu verði þá orðin þannig að Almannavarnir geti heimilað leikjum að fara fram.

Öll mót verða því tekin úr birtingu á vef KSÍ og birt að nýju þegar starfsfólk mótamála hefur stillt upp nýrri niðurröðun leikja, sem verður birt eins fljótt og við verður komið. Í undirbúningnum er miðað við neðangreindar forsendur.

Keppni meistaraflokks
Mjólkurbikar karla og kvenna hefjist um 5. júní.
Pepsi Max deild karla hefjist um 14. júní.
Pepsi Max deild kvenna hefjist um 16. júní.
Önnur mót meistaraflokka hefjist um 18.-20. júní

Mót yngri flokka
Gert er ráð fyrir að mót yngri flokka hefjist um 5. júní.

Almennt um leikjafyrirkomulag
Í öllum tilfellum þarf að lengja mótin inn í haustið og ræðst það af því hve margir leikir verða óleiknir þegar mótin fara af stað. Samt sem áður er ljóst að leika þarf þéttar. Ferðalög milli landshluta í miðri viku geta því aukist frá því sem áætlað var.

Eins og segir hér að ofan þá miðast ofangreint upphaf móta við að staðan í þjóðfélaginu verði þannig að Almannavarnir geti heimilað leikjum að fara fram. KSÍ hvetur því alla til að fara varlega og hlýða þeim fyrirmælum sem Almannavarnir hafa gefið út.
Athugasemdir
banner
banner