Gunnar Magnús, þjálfari Keflavíkur, var afar svekktur eftir 3-2 tap gegn Selfossi í Pepsi Max-deildinni í kvöld. Keflavík mætti ákveðið til leiks og var miklu betra liði í fyrri hálfleik.
Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði sigurmark Selfyssinga á lokamínútu venjulegs leiktíma.
Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði sigurmark Selfyssinga á lokamínútu venjulegs leiktíma.
Lestu um leikinn: Selfoss 3 - 2 Keflavík
„Það er mjög erfitt að lýsa þessum vonbrigðum. Að fara ekki með neitt héðan eftir virkilega flotta frammistöðu hjá stelpunum, frábærir kaflar, flott mörk og góðir spilkaflar. Baráttan var til fyrirmyndar og hvaða lið sem er væri súrt að fara frá borði með ekkert stig," sagði Gunnar.
„Stig hefði verið gífurlega mikilvægt fyrir okkur. Við þurfum að koma okkur á blað í þessari deild. Við ætluðum okkur þrjú stig en það er bara áfram gakk."
Þrátt fyrir mikið svekkelsi var Gunnar ánægður með fullt af atriðum í leik sinna stelpna.
„Við erum með ungt og reynslulítið lið, þetta er mikill skóli fyrir þessar stelpur. Við munum ekki setja hausinn niður í bringuna, það er bara áfram með smjörið. Við tökum það jákvæða með okkur inn í næsta leik."
Viðtalið við Gunna má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir