„Ég er mjög sáttur og virkilega stoltur af liðinu. Ég er ánægður með leikinn og fannst þetta bara vera nokkuð sannfærandi," sagði Steini þjálfari Breiðabliks eftir sannfærandi sigur á Þór/KA á Þórsvellinum í dag.
Lestu um leikinn: Þór/KA 1 - 4 Breiðablik
„Við refsuðum þeim með þeim færum sem við fengum. Heilt yfir fannst mér við sterkari og við þriðja markið var manni létt. Það lá aðeins á okkur hér í lokinn en þetta snýst ekkert um það. Þetta snýst um að vinna, skora fleiri mörk en andstæðingurinn og fá sem fæst mörk á okkur. Við vorum betri á báðum þeim sviðum í dag."
Þór/KA fékk ekki mikið af færum í dag.
„Við viljum frekar að liðin séu að skjóta utan við teig á okkur heldur en að komast á bak við okkur. Við erum með góðan markmann og þess vegna er betra að fá skot af 25 metrunum. Mér fannst þær ekki ná að brjóta okkur. Mér fannst leikurinn bara heilt yfir skipulagður og agaður. Sterkur og góður sigur."
Hildur, Agla, Berglind og Áslaug skoruðu allar fyrir Breiðablik í dag.
„Það er bara gott að við séum að skora fjögur mörk. Mér er drullusama hverjir skora ef við skorum fjögur mörk. Það sýnir bara að við erum með hættur á mörgum stöðum. Við fögnum þessu í dag, njótum heimferðarinnar og förum svo að undirbúa næsta leik á morgun."
Breiðablik er á toppnum með fullt hús stiga og markatöluna 13-2.
„Það er mitt verkefni að halda þeim á jörðinni og ég kvíði því alls ekki. Þetta er það miklir sigurvegarar að ég held að ég þurfi ekkert að vera með töfralausnir í því. Löngunin í liðinu til að gera vel er bara það sterk að við verðum klárar í næsta leik. Sigurhugfarið er til staðar hjá okkur."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir