Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 21. maí 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
U19 mætir Hvíta-Rússlandi í æfingaleikjum á Selfossi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
U19 ára landslið karla mun spila tvo æfingaleiki við jafnaldra sína frá Hvíta-Rússlandi í september.

Leikirnir munu fara fram á JÁVERK-vellinum á Selfossi þann 5. og 7. september.

„Leikirnir fara fram svo lengi sem að staðan í þjóðfélaginu í ljósi COVID-19 leyfi það og að UEFA gefi samþykki fyrir þeim," segir í frétt á vefsíðu KSÍ.

U19 landsliðið er að æfa sig fyrir EM 2021. Strákarnir mæta í undanriðil til Noregs í haust þar sem, auk heimamanna, má finna landslið Ungverjalands og Andorru.
Athugasemdir
banner
banner
banner