Íslenska landsliðið er mætt til Volgograd þar sem liðið mætir Nígeríu á morgun.
Á fréttamannafundi Íslands kom það fram að íslensku leikmennirnir munu hitta fjölskyldur sínar seinni partinn í dag.
Á fréttamannafundi Íslands kom það fram að íslensku leikmennirnir munu hitta fjölskyldur sínar seinni partinn í dag.
Heimir Hallgrímsson, þjálfari Íslands var í kjölfarið einfaldlega spurður að því hvort að íslensku leikmennirnir væru í kynlífsbanni á meðan á HM stendur.
„Allavega á meðan konurnar eru ekki komnar," sagði Heimir og hló. „Nei, þeir eru ekki í kynlífsbanni," bætti Heimir við.
Þá gappti fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson og sneri sér að Heimi, „Nú?" sagði fyrirliðinn.
„Ætlaru að nota þetta í fréttunum?" bætti Aron Einar síðan hlæjandi við áður en komið var að næstu spurningu.
Þegar Heimir og Aron fengu spurninguna um kynlífsbannið #fotboltinet pic.twitter.com/tKRbp1lD4M
— Fotbolti.net (@Fotboltinet) June 21, 2018
Athugasemdir