fim 21. júní 2018 19:31
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Sjáðu markið: Ótrúleg mistök hjá Caballero
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Króatía er komið yfir gegn Argentínu á heimsmeistaramótinu. Liðin leika í riðli með Íslendingum.

Ante Rebic skoraði þá með virkilega góðu skoti en það voru hins vegar ótrúleg mistök Willy Cabarello markvarðar Argentínu sem vöktu athygli.

Cabarello fékk þá sendingu til baka og ætlaði þá að vippa yfir Rebic sem setti pressu á hann.

Sú vippa klikkaði heldur betur hjá Caballero og vippaði hann beint á Rebic sem kláraði frábærlega.

Þegar þetta er skrifað er enn 1-0 fyrir Króatíu og tæpar 20 mínútur eftir.

Markið má sjá hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner