Þeir voru ekkert að kippa sér upp við það stuðningsmenn Senegal að þrífa upp eftir sig í stúkunni á Spartak vellinum í Moskvu eftir sigurinn gegn Póllandi í fyrradag.
Aisyahtullah Ramadhani, vakti athygli á því á Twitter síðu sinni.
Aisyahtullah Ramadhani, vakti athygli á því á Twitter síðu sinni.
Senegalarnir voru fjölmargir í stúkunni og mikið líf og fjör var á vellinum á meðan á leik stóð.
Þegar Nawaf Shukralla dómari leiksins hafði síðan flautað til leiksloka var komið að því að þrífa eftir sig. Frábær frammistaða stuðningsmanna Senegal og eitthvað sem hægt er að mæla með að aðrir taki sér til fyrirmyndar.
Senegal fans cleaning their section inside the ground today is by far the best thing you'll see today, great show of respect. ?? pic.twitter.com/77boAotsEd
-- Aisyahtullah Ramadhani (@Aisyahtullah) June 20, 2018
Athugasemdir