Ísland-Nígería á morgun
Victor Moses, leikmaður Chelsea og nígeríska landsliðsins, segir að Nígeríumenn stefni á að ná marki snemma í leiknum gegn Íslandi í Volgograd á morgun.
„Við erum með áætlun um að sækja gegn Íslandi í von um að ná marki snemma og láta þeim líða illa," sagði Moses.
„Við erum með áætlun um að sækja gegn Íslandi í von um að ná marki snemma og láta þeim líða illa," sagði Moses.
„Ég veit að þeir hafa líka sínar áætlanir en við munum reyna eins og við mögulega getum að hlaupa meira en þeir, sérstaklega á miðjunni og í sókninni."
Nígería tapaði gegn Króatíu í fyrsta leik og verður að fá eitthvað út úr leiknum gegn Íslandi til að halda lífi í vonum sínum.
„Við vitum að annað tap drepur áætlanir okkar um að komast í aðra umferð," sagði Mikel.
Leikurinn í Volgograd hefst klukkan 15:00 að íslenskum tíma á morgun.
Athugasemdir