Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 21. júní 2019 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Fylkir auglýsir eftir yfirþjálfara
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Knattspyrnudeild Fylkis leitar að kraftmiklum leiðtoga til að taka að sér starf yfirþjálfara félagsins.

Í boði er spennandi starf í að þróa barna- og unglingastarf Fylkis, og móta framtíðar starfsumhverfi með öflugu samstarfsfólki samkvæmt stefnu félagsins.

Viðkomandi hefur yfirumsjón með starfi um 30 þjálfara og rúmlega 500 iðkenda af báðum kynjum hjá öllum flokkum félagsins, ef frá eru taldir meistaraflokkar karla og kvenna.

Yfirþjálfari er ábyrgur fyrir útfærslu á afreks- og uppeldisstefnu félagsins í samstarfi við framkvæmdastjóra og stjórnir félagsins. Starfshlutfall er 100%.

Einn mikilvægasti þátturinn í starfi yfirþjálfara er að leiðbeina öðrum þjálfurum eftir þörfum og miðla af reynslu til að tryggja framþróun allra þjálfara og iðkenda félagsins.

Starfssvið:
● Stjórn á þjálfarateymi og er næsti yfirmaður þjálfara
● Stefnumótun og yfirumsjón með þjálfun og þjálfurum
● Yfirumsjón með uppeldisstarfi og afreksþjálfun
● Skipulagning á æfingatöflum í samráði við íþróttafulltrúa
● Skipulagning og verkaskipting aðstoðarþjálfara
● Þjálfun eins flokks samhliða hlutverki yfirþjálfara
● Reglulegir fundir með þjálfurum
● Fylgjast reglubundið með leikjum allra flokka og leiðbeina þjálfurum í faglegu starfi
● Yfirumsjón með knattspyrnu- og tækniskóla félagsins á sumrin
● Reglulegir samráðsfundir með þjálfurum meistaraflokka og yngri flokka Fylkis
● Reglulegir stöðufundir með barna- og unglingaráði Fylkis
Menntunar og hæfniskröfur:
● UEFA-A þjálfaragráða er skilyrt af KSÍ eða þarf að vera í farvatninu
● Reynsla af þjálfun nauðsynleg
● Góðir skipulags- og stjórnunarhæfileikar
● Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni, drifkraftur og frumkvæði
● Sjálfstæði í starfi og hæfileiki til að vinna með öðrum
● Hæfileiki til að tjá sig í rituðu og töluðu máli, og almenn tölvufærni
● Hreint sakavottorð

Umsóknir skulu sendast fyrir 1. júlí 2019 á netfangið [email protected]. Frekari upplýsingar fást með því að senda fyrirspurnir á sama netfang.

Fylkir hvetur bæði karla og konur á öllum aldri til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Steinsson, íþróttafulltrúi Fylkis ([email protected])
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner