Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 21. júní 2019 20:00
Oddur Stefánsson
Son: Við viljum meira á næsta tímabili
Mynd: Getty Images
Heung-Min Son leikmaður Tottenham segir að liðið vilji meira þrátt fyrir að lenda í fjórða sæti í deildinni og komast í úrslit Meistaradeildarinnar.

Tímabil Tottenham endaði ekki beint með stæl þegar liðið tapaði fyrir Liverpool í úrslitum Meistaradeildarinnar.

Son segir þó að leikmenn Tottenham eigi eftir að notfæra sér þessi vonbrigði og munu þeir koma sterkari inn í næsta tímabil.

„Ég tel þetta hafa verið frábært tímabil, margar frábærar minningar en líka einhver vonbrigði, sagði Son í viðtali við Tottenham. „En við getum samt verið stoltir."

Son mun vera í banni í fyrstu tveim leikjum Tottenham á næsta tímabili þegar liðið fær nýliða Aston Villa í heimsókn og þegar Spurs heimsækir meistara Mamchester City.
Athugasemdir
banner
banner