„Lítið að segja, auðvitað svekktir með niðurstöðu leiksins sem og frammistöuna sérstaklega í seinni hálfleik, við fáum á okkur mark snemma í báðum hálfleikunum og það litar svolítið leikinn, ætluðum að koma sterkari inn í seinni hálfleikinn og sækja þessi þrjú stig, menn svoldið koðnuðu niður, þeir gengu á lagið og í seinni hluta leiksins áttum við bara fá svör,"sagði Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, svekktur eftir 1-4 tap á heimavelli í dag gegn Stjörnunni.
Jósef Kristinn Jósefsson hefði mögulega átt að fá rautt spjald undir lok fyrri hálfleiks þegar hann braut í Ingibergi Kort inn í teig, hvað hafði Ási að segja um það?
"Það verða aðrir að meta það," sagði Ási sem virtist ekki vilja tjá sig mikið um það mál.

Lestu um leikinn: Fjölnir 1 - 4 Stjarnan
Nokkrir dagar eru enn eftir af félagsskiptaglugganum, ætlar Ási að styrkja hópinn?
„Við erum allavega að skoða, við skoðum hvað er í boði og ef við getum bætt við okkur leikmönnum sem við teljum geta styrkt okkur þá gerum við það."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir