Ruben Loftus-Cheek snýr aftur í lið Chelsea eftir að hafa verið frá í rúmt ár en liðið mætir Aston Villa klukkan 15:15 á Villa Park í dag.
Loftus-Cheek meiddist illa í æfingaleik í maí á síðasta ári og hefur ekkert spilað í deildinni á þessari leiktíð.
Hann er nú mættur í byrjunarlið Chelsea. Olivier Giroud er þá fremstur. Mateo Kovacic, Andreas Christensen og N'Golo Kante koma þá allir aftur inn í byrjunarliðið.
Byrjunarlið Aston Villa: Nyland, Hause, Konsa, Mings, Targett, Luiz, McGinn, Hourihane, El Ghazi, Davis, Grealish.
Byrjunarlið Chelsea: Kepa, Azpilicueta, Christensen, Rudiger, Alonso, Kante, Loftus-Cheek, Kovacic, Willian, Giroud, Mount.
Athugasemdir