Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. júní 2020 15:02
Brynjar Ingi Erluson
England: Joelinton á skotskónum í sigri - Egan rekinn af velli
Joelinton gat fagnað
Joelinton gat fagnað
Mynd: Getty Images
Newcastle 3 - 0 Sheffield Utd
1-0 Allan Saint-Maximin ('55 )
2-0 Matt Ritchie ('69 )
3-0 Joelinton ('78 )
Rautt spjald: John Egan, Sheffield Utd ('50)

Newcastle United fer vel af stað eftir langt hlé en liðið vann Sheffield United 3-0 á St. James's Park í 30. umferð deildarinnar í dag.

Gestirnir voru töluvert hættulegri fyrstu mínúturnar og litu ágætlega út. Brasilíski framherjinn Joelinton átti erfitt uppdráttar og virtist ekki vera að finna sig í framlínu Newcastle.

Newcastle vann sig inn í leikinn og reyndist Allan Saint-Maximin mjög hættulegur í sóknarleiknum. Miguel Almiron vildi fá vítaspyrnu á 29. mínútu eftir mikla baráttu við John Egan sem virtist toga í treyjuna hans.

Það var þó ekkert dæmt og ekki notast við VAR. Egan og Joelinton fóru svo kjölfarið í bókina hjá dómaranum eftir rifrildi. Markalaust í hálfleik.

Í upphafi síðari hálfleiks reyndist Egan sekur um dómgreindarleysi er hann togaði í Joelinton sem var að sleppa í gegn. Annað gula spjaldið á loft og Egan rekinn af velli.

Newcastle efldist við þetta og braut Saint-Maximin ísinn á 55. mínútu með skoti af stuttu færi. Hræðilegur varnarleikur hjá gestunum.

Billy Sharp fékk ágætis tækifæri til að jafna leikinn á 59. mínútu en skalli hans fór framhjá. Ákjósanlegt færi fyrir þenna öfluga framherja.

Matt Ritchie skoraði laglegt mark á 69. mínútu. Hann lét vaða af 20 metra færi og horfði Dean Henderson á eftir boltanum, sem endaði í netinu.

Þrátt fyrir að hafa átt slakan leik tókst Joelinton að koma sér á blað níu mínútum síðar. Almiron átti góða sendingu fyrir markið og það hefði verið kraftaverk ef Joelinton hefði ekki klárað færið.

Lokatölur 3-0, Newcastle í vil. Newcastle í 12. sæti með 38 stig en barátta Sheffield United um Evrópusæti harðnar. Liðið er með 44 stig í 7. sæti.
Athugasemdir
banner
banner