Matteo Guendouzi, miðjumaður Arsenal, á yfir höfði sér leikbann eftir að hafa tekið Neal Maupay, framherja Brighton, hálstaki undir lokin í leik liðanna í gær.
Maupay tryggði Brighton sigur í viðbótartíma en talsverður hiti var í leiknum.
Enska knattspyrnusambandið bíður nú eftir því að sjá hvort Martin Atkinson, dómari leiksins, hafi skrifað um atvikið í skýrslu sinni.
Ef ekki getur enska sambandið gripið inn í og ákært Guendouzi fyrir hegðun sína.

Fjölmiðlar á Englandi telja líklegt að Guendouzi verði dæmdur í leikbann og sektaður fyrir hegðunina.
Surely a ban for Guendouzi? pic.twitter.com/eqE1zpvy1b
— Ryan (@ryangoIdy8) June 20, 2020
Athugasemdir