Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. júní 2020 14:14
Brynjar Ingi Erluson
Lengjudeild kvenna: Natasha skoraði tvö er Keflavík vann Völsung
Natasha Moraa Anasi skoraði tvö mörk fyrir Keflavík
Natasha Moraa Anasi skoraði tvö mörk fyrir Keflavík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Völsungur 0 - 4 Keflavík
0-1 Dröfn Einarsdóttir ('45 )
0-2 Natasha Moraa Anasi ('46 )
0-3 Amelía Rún FJeldsted ('75 )
0-4 Natasha Moraa Anasi ('85 )

Keflavík byrjaði Lengjudeild kvenna á að vinna Völsung 4-0 á Húsavík í dag.

Dröfn Einarsdóttir kom gestunum yfir undir lok fyrri hálfleiks áður en Natasha Moraa Anasi gerði annað markið í upphafi síðari hálfleiks.

Natasha var öflug með Keflvíkingum á síðustu leiktíð þar sem hún gerði sex mörk í sautján leikjum. Árið áður var hún með 13 mörk í Inkasso-deildinni og ljóst að hún á eftir að vera mikilvæg í sumar.

Amelía Rún Fjeldsted gerði þriðja markið á 75. mínútu áður en Natasha rak síðasta naglann í kistu Völsungs fimm mínútum fyrir leikslok.

4-0 sigur Keflvíkinga staðreynd og fyrstu stig liðsins í hús.
Athugasemdir
banner
banner