Karim Benzema, þrítugur sóknarmaður Real Madrid, virðist frekar þreyttur á því að það sé verið að tala um sig í fjölmiðlum.
Í gær kallaði hann Aurelio De Laurentiis, eiganda Napoli, brjálæðing og í dag sagði hann ítalska fréttamanninum Gianluca Di Marzio að skipta um starfsgrein.
Benzema er þarna að bregðast við ummælum De Laurentiis annars vegar, þar sem hann segir Napoli ekki hafa áhuga á Benzema því hann sé gamall karl, og orðrómum frá Gianluca Di Marzio hins vegar, sem orðaði Benzema við AC Milan.
„#Dimarzio. Þú ættir að skipta um starfsgrein #lygari," birti Benzema á Instagram.
Benzema fór ekki með franska landsliðinu á HM vegna þess að hann á í útistöðum við Didier Deschamps, landsliðsþjálfara Frakka.
Athugasemdir