Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. júlí 2018 13:13
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarliðin í Árbænum: Stjarnan gerir sex breytingar
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Fylkir tekur á móti Stjörnunni í undanúrslitaleik Mjólkurbikars kvenna í dag. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 4 og er einnig hægt að fylgjast með textalýsingu Fótbolta.net.

Fylkir er búið að vinna fjóra leiki í röð í toppbaráttu Inkasso deildarinnar og stefnir á að komast upp í Pepsi. Árbæingar slógu út tvö Pepsi-deildarlið til að komast í úrslitaleikinn, HK/Víking og ríkjandi bikarmeistara ÍBV.

Fylkir gerir þrjár breytingar á byrjunarliðinu sem valtaði yfir ÍR á mánudaginn.

Stjarnan lagði Íslandsmeistar Þór/KA að velli í 8-liða úrslitum. Garðbæingar gera sex breytingar á byrjunarliðinu sem tapaði 1-0 gegn Blikum á miðvikudaginn.

Stjarnan þarf að gera breytingar vegna þess að næsta miðvikudag er gífurlega mikilvægur heimaleikur gegn Val í Pepsi-deildinni.

Fylkir:
12 Þórdís Edda Hjartardóttir (M)
4 María Björg Fjölnisdóttir
7 Thelma Lóa Hermannsdóttir
8 Ída Marín Hermannsdóttir
15 Ísold Kristín Rúnarsdóttir
20 Margrét Björg Ástvaldsdóttir
21 Berglind Rós Ágústsdóttir (F)
23 Tinna Björk Birgisdóttir
25 Sæunn Rós Ríkharðsdóttir
27 Bryndís Arna Níelsdóttir
29 Þóra Kristín Hreggviðsdóttir

Stjarnan:
1 Berglind Hrund Jónasdóttir (M)
6 Lára Kristín Pedersen
7 Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (F)
9 Telma Hjaltalín Þrastardóttir
10 Anna María Baldursdóttir
16 María Eva Eyjólfsdóttir
18 Viktoría Valdís Guðrúnardóttir
24 Bryndís Björnsdóttir
26 Harpa Þorsteinsdóttir
27 Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
30 Katrín Ásbjörnsdóttir
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner