Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. júlí 2018 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Evra býður Ronaldo velkominn til Juve
Mynd: Getty Images
Patrice Evra var leikmaður Juventus í þrjú ár frá 2014 til 2017 og vann til fjölda titla með félaginu.

Evra er mjög ánægður með komu Cristiano Ronaldo til félagsins enda þekkir hann Ronaldo frá tíma þeirra saman hjá Manchester United.

Evra sendi Ronaldo myndband til að bjóða hann velkominn í Juventus.

Franski bakvörðurinn, sem lék síðast fyrir West Ham United, söng þar „Con Te Partiró" eftir Andrea Bocelli og breytti textanum fyrir gamla liðsfélaga sinn.

„Juventini, þið eruð með besta leikmann í heimi og hann heitir Cristiano Ronaldo," söng Evra í takt við lagið.

„CriCri, það eru tveir hlutir sem ég sagði ekki við þig í símann. Heldurðu að þú hlaupir hratt? Þú munt ekki gera það eftir Villar Perosa æfingabúðirnar, þú verður að leggja þig allan fram bróðir.

„Ég veit það Ronny að þú ert búinn að vinna fimm Gullknetti en hjá Juve þá verður maður að hlaupa."





Athugasemdir
banner
banner