Naby Keita ólst upp spilandi fótbolta á götum Gíneu sem er land í norðvesturhluta Afríku.
Keita var mikill Liverpool aðdáandi og var uppáhaldsleikmaðurinn hans miðjumaðurinn goðsagnakenndi Steven Gerrard.
„Ég er miðjumaður og þegar ég var krakki þá spilaði ég á götum Conakry í Liverpool treyju. Ég vildi alltaf vera eins og Steven Gerrard," sagði Keita.
Keita fékk treyjunúmerið 8 hjá Liverpool, sem er sama númer og Gerrard notaði. Keita segist átta sig á ábyrgðinni sem fylgir númerinu.
„Ég var alltaf númer 8. Það er líka númerið sem pabbi minn var með þegar hann spilaði fótbolta. Þetta númer á sérstakan stað í hjarta mínu.
„Ég átta mig á því að þetta er stórt númer í Liverpool og ég hlakka til að bera það. Ég veit að þetta var númerið hans Steven en ég ætla ekki að setja neina auka pressu á mig útaf því. Ég er einbeittur að því að spila minn leik og gera mitt besta fyrir Liverpool."
Athugasemdir