Borussia Dortmund er búið að staðfesta að Andre Schürrle sé á leið frá félaginu.
Schürrle tók ekki þátt í 1-0 sigri Dortmund gegn Manchester City í International Champions Cup æfingamótinu sem fer fram í Bandaríkjunum.
„Hann hefur fengið leyfi til að hefja viðræður við annað félag. Við megum ekki segja hvað það er," sagði talsmaður Dortmund.
Schürrle hefur komið víða við á ferlinum. Fyrir fimm árum fór hann til Chelsea en hefur einnig leikið fyrir Bayer Leverkusen, Mainz og Wolfsburg.
Schürrle er 27 ára gamall kantmaður. Hann hefur gert 30 mörk í 73 landsleikjum fyrir Þýskaland.
Athugasemdir