Viktor Jónsson framherji Þróttar hefur verið orðaður við KR að undanförnu en Gunnlaugur Jónsson þjálfari Þróttar segir leikmanninn ekki á förum frá félaginu.
KR leitar nú að framherja eftir að Björgvin Stefánsson fór í frí til að leita sér hjálpar við fíknivanda sínum og Viktor hefur verið orðaður við félagið.
„Viktor er okkar leikmaður og hann á samning í eitt ár í viðbót. Hann klárar tímabilið,"sagði Gunnlaugur í viðtali við Kristófer Jónsson hér á Fótbolta.net eftir leik Þróttar og Njarðvíkur í gærkvöldi.
Viktor Jónsson er á 24. aldursári.
Hann hefur skorað 9 mörk í 11 leikjum með Þrótti í Inkasso deildinni í sumar.
Athugasemdir