BeIN Sports segist hafa heimildir fyrir því að West Ham United hafi gert Besiktas tilboð til að kaupa króatíska varnarmanninn Domagoj Vida.
Vida hefur verið fastamaður í byrjunarliði Króatíu undanfarin ár og gerði gott mót er Króatir fengu silfur á heimsmeistaramótinu í sumar.
Vida er 29 ára gamall og kom frítt til Besiktas frá Dynamo Kiev í janúar. Þá var hann metinn á 9 milljónir evra en nú er verðmiðinn á honum kominn upp í 15 milljónir hið minnsta.
Vida er miðvörður að upplagi en getur leyst stöðu hægri bakvarðar. Hann er samningsbundinn Besiktas til 2022.
Sevilla hefur einnig áhuga á varnarmanninum og hafa Atletico Madrid, Leicester og Everton verið orðuð við hann.
Athugasemdir