Það eru spennandi leikir framundan í íslenska boltanum í dag. Pepsi Max-deildin fer aftur að rúlla og eru fjórir leikir í 13. umferð deildarinnar í dag.
Klukkan 16:00 heimsækir botnlið ÍBV lið Fylkis. ÍBV þarf ekkert annað en sigur í þessum leik. KA, sem er í fallsæti, tekur á móti ÍA klukkan 17:00. KA hefur tapað fjórum leikjum í röð og það hlýtur að vera komin pressa á Óla Stefán Flóventsson.
Þá eru tveir leikir klukkan 19:15. KR og Stjarnan mætast í stórleik. Stjarnan komst áfram í forkeppni Evrópudeildarinnar í síðustu viku og mætir spænska úrvalsdeildarfélaginu Espanyol í komandi viku. KR er á toppi Pepsi Max-deildarinnar með 10 stigum meira en Stjarnan.
Þá mætast Valur og Víkingur á Víkingsvelli. Valsmenn eru búnir að vinna þrjá í röð í deildinni og eru í sjötta sæti með 16 stig. Víkingur er í tíunda sæti með 12 stig.
Fram og Keflavík eigast við í Inkasso-deild karla og í 2. deild kvenna mætast Sindri og Grótta.
sunnudagur 21. júlí
Pepsi Max-deild karla
16:00 Fylkir-ÍBV (Würth völlurinn)
17:00 KA-ÍA (Greifavöllurinn)
19:15 KR-Stjarnan (Meistaravellir)
19:15 Víkingur R.-Valur (Víkingsvöllur)
Inkasso deildin - 1. deild karla
19:15 Fram-Keflavík (Framvöllur)
2. deild kvenna
16:00 Sindri-Grótta (Sindravellir)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir