Miðjumaðurinn N'Golo Kante er farinn aftur heim til Englands í endurhæfingu vegna hnémeiðsla sem hafa verið að hrjá hann frá því undir lok síðasta tímabils.
Kante, sem hefur ekkert spilað á undirbúningstímabilinu hingað til, varð fyrir meiðslunum í leik gegn Watford í maí.
Á þeim tíma sagði þáverandi þjálfari Chelsea, Maurizio Sarri, að það hefðu verið mistök að spila Kante og að hann hefði átt að hvíla hann.
Núverandi Chelsea tapaði sínum fyrsta leik sem stjóri liðsins í gær gegn Kawasaki í Yokohama í æfingaleik í gær. Leikurinn endaði 1-0 fyrir Kawasaki.
Næsti leikur Chelsea er við Barcelona í Japan þann 23. júlí.
N’Golo Kante has travelled back to the UK to continue his rehabilitation for an injury connected to the knee problem he sustained at the end of last season.#CFCinJapan pic.twitter.com/w4MdkhAANU
— Chelsea FC (@ChelseaFC) July 21, 2019
Athugasemdir