sun 21. júlí 2019 23:00
Arnar Helgi Magnússon
Solskjær vill meira frá Lingard
Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær vill að Jesse Lingard stígi upp í vetur og spili betur en á síðustu leiktíð.

Enski landsliðsmaðurinn spilaði 34 leiki í öllum keppnum á síðasta tímabili en skoraði einungis fjögur mörk.

„Hann hefur stigið upp í stóru leikjunum og að sjálfsögðu er það mikilvægt en heilt yfir býst ég við meiru frá honum en hann sýndi í vetur," segir Solskjær.

„Hann er fyrsti maðurinn sem gerir sér grein fyrir því að hann getur gert miklu betur en hann sýndi síðasta vetur."

Ole Gunnar segist vera búinn að ræða sérstaklega við Jesse en vill ekki gefa upp hvað fór þeirra á milli.

„Það samtal þarf ekkert að fara lengra. Jesse er frábær náungi og hann veit til hvers er ætlast af honum," sagði Norðmaðurinn að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner