Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 21. júlí 2020 12:00
Magnús Már Einarsson
Arteta ánægður með stöðuna á viðræðum við Aubameyang
Mynd: Getty Images
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, segist vera vongóður um að Pierre-Emerick Aubameyang framlengi samning sinn við félagið.

Aubameyang á eitt ár eftir af samningi sínum en viðræður eru í gangi um nýjan samning.

„Ég er ánægður með það hvernig viðræðurnar eru að ganga," sagði Arteta.

„Ég er ánægður með það sem ég er að heyra. Því fyrr sem við getum gert þetta því betra er það fyrir alla."

„Ég er vongóður um að hann muni framlengja dvöl sína."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner