Búið er að grafa nafn Liverpool á bikarinn sem liðið fær afhent eftir leikinn gegn Chelsea annað kvöld.
Liverpool tryggði sér á dögunum Englandsmeistaratitilinn í fyrsta skipti í 30 ár.
Venju samkvæmt verður bikarinn afhentur eftir síðasta heimaleikinn í deildinni og það er gegn Chelsea á morgun.
Liverpool tryggði sér á dögunum Englandsmeistaratitilinn í fyrsta skipti í 30 ár.
Venju samkvæmt verður bikarinn afhentur eftir síðasta heimaleikinn í deildinni og það er gegn Chelsea á morgun.
Vegna kórónuveirunnar verða engir áhorfendur viðstaddir en leikmenn og starfsmenn Liverpol fá medalíur og bikarnn afhentan á sérstökum verðlaunapalli sem hefur verið byggður í Kop stúkunni.
All of the lights með Kanye West verður spilað þegar leikmenn koma upp á verðlaunapallinn og lagið Sky full of stars með Coldplay verður spilað þegar Jordan Henderson, fyrirliði, lyftir bikarnum á loft.
Meistarar Liverpool eiga sviðið, bókstaflega, í Vellinum annað kvöld á @siminn Sport. Byrjum 21.15 eftir LIV-CHE en bikarathöfnin hefst 21.30. Leikmenn LIV völdu Kanye-lag þegar þeir rölta upp á sviðið en svo verður Coldplay á fóninum þegar Hendo lyftir bikarnum. pic.twitter.com/cmLNryHBLs
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) July 21, 2020
After claiming their first top-flight title for 30 years, #LFC will lift the Premier League trophy for the first time after Wednesday's match against Chelsea at Anfield - here's a look at their name on the trophy...🔴🏆
— Sky Sports News (@SkySportsNews) July 21, 2020
Athugasemdir