Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 21. júlí 2020 19:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fanndís Friðriks ófrísk - Ekki meira með í sumar
Fanndís er með barni.
Fanndís er með barni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fanndís Friðriksdóttir, leikmaður Vals og íslenska landsliðsins, er ólétt og leikur ekki meira með Val á þessari leiktíð.

Fanndís varð þrítug í haust og gekk í raðir Vals um mitt mót sumarið 2018. Hún skoraði sjö mörk í átján leikjum þegar Valur var Íslandsmeistari á síðustu leiktíð. Hún skoraði t.a.m. gegn Breiðabliki en Valur mætir einmitt Breiðablik í kvöld.

Fanndís hefur ekki leikið með Val í síðustu þremur leikjum liðsins og ástæðan er nú komin í ljós. Hún á von á barni með kærasta sínum Eyjólfi Héðinssyni, leikmanni Stjörnunnar.

„Fanndís staðfesti það í dag að hún væri ófrísk og myndi ekki leika meira með liðinu," sagði Svava Kristín Grétarsdóttir, í kvöldfréttum Stöð 2 nú í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner