Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 21. júlí 2020 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ísland í dag - Risaleikur í Pepsi Max-kvenna
Breiðablik og Valur mætast á Kópavogsvelli
Breiðablik og Valur mætast á Kópavogsvelli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram mætir Þrótturum á Eimskipsvellinum
Fram mætir Þrótturum á Eimskipsvellinum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Níu leikir eru á dagskrá í íslenska boltanum í dag en Breiðablik og Valur eigast við í risaleik dagsins í Pepsi Max-deild kvenna.

Breiðablik og Valur mætast á Kópavogsvelli klukkan 19:15 en Breiðablik hefur unnið alla fjóra leiki sína á meðan Valur hefur unnið fimm og gert eitt jafntefli.

Blikar hafa ekki enn fengið mark á sig í deildinni en þessi tvö lið hafa verið að berjast um Íslandsmeistaratitilinn síðustu ár. Það má því gera ráð fyrir hörkuleik í Kópavogi.

Tveir leikir fara þá fram í Lengjudeild karla. Grindavík sem hefur verið brösulega af stað fær Aftureldingu í heimsókn. Afturelding hefur verið á eldi í síðustu leikjum en liðið hefur skorað 14 mörk í síðustu þremur leikjunum og unnið þá alla. Grindavík tapaði á meðan fyrstu tveimur leikjunum en hefur gert þrjú jafntefli og unnið einn síðan.

Þá á Þróttur R. gríðarlega erfitt verkefni fyrir höndum. Liðið hefur spilað langt undir getu í sumar. Liðið hefur skorað eitt mark í sex leikjum og tapað þeim öllum á meðan Fram gerir atlögu að því að komast upp. Fram hefur unnið fjóra, gert eitt jafntefli og tapað einum.

Hægt er að sjá alla leiki dagsins hér fyrir neðan.

Leikir dagsins:

Pepsi-Max deild kvenna
19:15 Breiðablik-Valur (Kópavogsvöllur)

Lengjudeild karla
19:15 Grindavík-Afturelding (Grindavíkurvöllur)
19:15 Þróttur R.-Fram (Eimskipsvöllurinn)

Lengjudeild kvenna
19:15 Víkingur R.-Völsungur (Víkingsvöllur)
19:15 Tindastóll-Fjölnir (Sauðárkróksvöllur)
19:15 Grótta-Haukar (Vivaldivöllurinn)

4. deild karla - C-riðill
20:00 Skallagrímur-Ísbjörninn (Skallagrímsvöllur)
20:00 KFB-KÁ (Bessastaðavöllur)
20:00 KM-Berserkir (KR-völlur)
Athugasemdir
banner
banner
banner