Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. júlí 2020 14:20
Magnús Már Einarsson
Klopp útilokar að koma inn á gegn Chelsea
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur útilokað að hann muni spila gegn Chelsea í næstsíðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á morgun.

Liverpool fær eftir leik afhentan enska meistaratitilinn í fyrsta skipti í 30 ár.

Þegar Lverpool lyfti bikarnum í maí 1990 kom Kenny Dalglish, stjóri liðsins, inn á sem varamaður og spilaði sinn 515. leik með Liverpool og jafnframt síðasta leik sinn með liðinu.

„Það fyrsta sem ég verð að segja er að það er ekki möguleiki á að ég komi inn á sem varamaður í leiknum á morgun," sagði Klopp léttur í bragði í byrjun á fréttamannafundi í dag.

„Kannski eru það mikilvægustu upplýsingarnar fyrir alla hér!"
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner