Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. júlí 2020 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Real Sociedad vonast til að halda Ödegaard
Martin Ödegaard
Martin Ödegaard
Mynd: Getty Images
Spænska félagið Real Sociedad heldur í vonina um að halda norska sóknartengiliðnum Martin Ödegaard á láni út næsta tímabil.

Ödegaard gekk til liðs við Sociedad á láni frá Real Madrid síðasta sumar en hann átti gott tímabil í spænsku deildinni þar sem hann skoraði sjö mörk og lagði upp níu.

Hann hjálpaði Sociedad að ná sjötta sæti deildarinnar og þar með tryggja Evrópudeildarsæti en Sociedad vonast til að halda honum í eitt tímabil til viðbótar.

„Já ég held að hann verði áfram. Þetta er ekki undir okkur komið heldur honum og Real Madrid en við erum vongóðir um að hann verði í eitt tímabil til viðbótar," sagði Jokin Aperribay, forseti Sociedad.
Athugasemdir
banner
banner
banner