þri 21. júlí 2020 19:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Southampton sagt hafa samþykkt tilboð Everton í Höjbjerg
Hojbjerg á leið til Everton?
Hojbjerg á leið til Everton?
Mynd: Getty Images
Everton ætlar að sigra í baráttunni við Tottenham um að landa miðjumanninum Pierre-Emile Höjbjerg ef marka má heimildir talkSPORT.

Samkvæmt heimildum miðilsins þá vill Höjbjerg fara frekar til Spurs en Daniel Levy er ekki tilbúinn að borga þá upphæð sem Southampton vill fá fyrir danska miðjumanninn.

Heimildamenn segja að hinn 24 ára Höjbjerg hafi mætt á æfingasvæði Everton og að Everton hafi boðið þær 25 milljónir punda sem Southampton vill fá. Everton hafði áður boðið í Höjbjerg en tvisvar hafði tilboðinu verið hafnað.

Hojbjerg gekk í raðir Southampton fyrri 13 milljónir punda árið 2016 frá Bayern Munchen.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner