Þorvaldur Árnason og Erlendur Eiríksson, tveir af bestu og reyndustu dómurum landsins, eru að snúa aftur í Pepsi Max-deildina eftir að hafa misst af byrjun móts.
Dómgæslan hefur verið mikið í umræðunni fyrsta þriðjung mótsins en það er fagnaðarefni að fá Þorvald og Erlend aftur til starfa.
Þorvaldur dæmdi leik í síðustu umferð 2. deildar og verður varadómari í leik FH og KA í Pepsi Max-deild karla á morgun. Málarameistarinn Erlendur var varadómari í leik Fylkis og KR.

Þess má svo geta að Arnar Ingi Ingvarsson dæmdi sinn fyrsta leik í Pepsi Max-deild karla á föstudaginn þegar Stjarnan vann HK.
Arnar Ingi var varadómari en kom inn í seinni hálfleik þegar Guðmundur Ársæll Guðmundsson fór meiddur af velli.
Athugasemdir