Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 21. júlí 2021 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Derby fær leyfi til að semja við leikmenn
Mynd: Getty Images
Derby County, sem spilar undir stjórn Wayne Rooney, er í miklum vandræðum fyrir komandi leiktíð í Championship deildinni.

Félagið má ekki kaupa nýja leikmenn en hefur fengið leyfi til að semja við nýja menn. Derby má bjóða leikmönnum sem vilja koma á frjálsri sölu 12 mánaða samninga.

Eins og staðan er í dag þá eru aðeins níu leikmenn í aðalliðshópi Derby, þar af eru tveir markverðir. Rooney mun nýta unga leikmenn félagsins á komandi leiktíð en ljóst er að félagið þarf semja við nýja menn til að halda sér í deildinni.

Derby rétt bjargaði sér frá falli á síðasta tímabili með 44 stig úr 46 leikjum. Það verður áhugavert að fylgjast með hvort Rooney takist að halda liðinu á floti.
Athugasemdir
banner
banner