Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. ágúst 2018 11:26
Magnús Már Einarsson
Balotelli verður áfram hjá Nice
Super Mario.
Super Mario.
Mynd: Getty Images
Franska félagið Nice hefur staðfest að ítalski framherjinn Mario Balotelli leiki áfram með liðinu í vetur.

Hinn 28 ára gamli Balotelli hefur verið orðaður við Marseille og fleiri félög undanfarið en hann mætti ekki til æfinga hjá Nice eftir sumarfrí.

Balotelli hefur verið í leikbanni í byrjun tímabils í Frakklandi en nú er ljóst að hann verður áfram hjá Nice.

„Tímabil þrjú er framundan. Allir aðilar náðu samkomulagi um það á mánudagskvöld," sagði Nice í yfirlýsingu í gær.

Balotelli, sem er fyrrum leikmaður Manchester City og Liverpool, hefur skorað 43 mörk með Nice en hann er klár í slaginn fyrir leik liðsins gegn Lyon um næstu helgi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner