Jamie Carragher klæddist Manchester United treyju og Gary Neville var í Liverpool treyju merktri Xherdan Shaqiri í þættinum Monday Night Football á Sky í gær.
Þeir félagar fóru í skotkeppni fyrir tveimur vikum og sá sem tapaði átti að klæðast treyju frá erkifjendunum. Neville tapaði og fékk Liverpool treyju sem var árituð af Xherdan Shaqiri.
Neville hefur nokkrum sinnum lýst yfir andúð sinni á leikstíl Shaqiri og gagnrýnt hann fyrir að bakka ekki í vörn og sinna ekki varnarskyldum sínum.
Carragher ákvað að klæðast einnig Manchester United treyju í gær en fólk gat komið með áheit á hann þess efnis og ágóðinn rennur til góðgerðarmála.
Sjá einnig:
Shaqiri vill sjá Neville klæðast treyjunni
Athugasemdir