Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. ágúst 2018 17:00
Magnús Már Einarsson
Ramsey sagður á óskalista Manchester United
Mynd: Getty Images
Manchester United ætlar að reyna að kaupa Aaron Ramsey miðjumann Arsenal í janúar næstkomandi. Manchester Evening News segir frá þessu í dag.

Ramsey er á síðasta ári samningsins hjá Arsenal og hann gæti farið frítt frá félaginu næsta sumar.

Manchester United gæti því reynt að kaupa Ramsey fyrir lága fjárhæð í janúar.

Ramsey hafnaði Manchester United þegar hann yfirgaf Cardiff árið 2008.

Þess í stað samdi hinn 27 ára gamli Ramsey við Arsenal þar sem hann á yfir 300 leiki að baki.
Athugasemdir
banner
banner
banner