Fotbolti.net
21.08.19 - 20:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Viktor Örn: Ánægður með að ná 90 mínútum - Alltaf von

Auglýsing
Viktor Örn (til hægri).

Viktor Örn (til hægri).

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Fyrri hálfleikurinn eyðilagði þetta fyrir okkur. Við spiluðum ágætlega en fáum á okkur tvö skítamörk og það var brekka eftir það sem við náum ekki að rífa okkur upp úr," sagði Viktor Örn Guðmundsson, leikmaður ÍR, eftir 0-3 tap á heimavelli gegn Vestra í 2. deild karla í kvöld.

Lestu um leikinn: ÍR 0 - 3 Vestri
Viktor var loksins í byrjunarliði eftir löng meiðsli. Viktor hafði komið inn á fimm sinnum í sumar en hann missti af allri síðustu leiktíð.

„Auðvitað mjög góð tilfinning að byrja loksins leik, ég fann mig ágætlega og hljóp mikið. Ánægður með að hafa náð 90 mínutum."

Vonir ÍR eru orðnar að nánast engu um að komast upp í Inkasso-deildina en liðið er nú níu stigum frá Vestra sem situr í 2. sæti deildairnnar.

„Við vorum á ágætis skrið en tveir tapleikir núna í röð gera okkur lífið leitt. Vissulega er þetta brekka en það er alltaf von."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.