21.08.26 - 21:53
Ívan Guðjón Baldursson
Di Gregorio fer til Bournemouth

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildarfélagið Bournemouth er í viðræðum við Juventus um kaup á markverðinum Michele Di Gregorio sem stóð sig ekki nægilega vel á milli stanga stórveldisins á síðustu leiktíð.

TENGT EFNI
Vicario til Juventus (Staðfest)
Guglielmo Vicario verður aðalmarkvörður Juve á nýrri leiktíð og er félagið tilbúið að losa sig bæði við Di Gregorio og Mattia Perin.
Bournemouth vill fá 29 ára Di Gregorio á lánssamningi til að veita Djordje Petrovic samkeppni um markmannsstöðuna. Það mun kaupmöguleiki fylgja með láninu, en Juventus keypti Di Gregorio upprunalega úr röðum Monza fyrir 20 milljónir evra.
Di Gregorio yrði fjórði leikmaðurinn sem Bournemouth fær í sumar eftir kaup á António Silva, Álvaro Rodríguez og Juanlu Sánchez. Hann er sagður vera spenntur fyrir tækifærinu að spila í ensku úrvalsdeildinni.
Mattia Perin er einnig á leið burt þar sem Palermo er komið langt á veg í viðræðum um félagaskipti. Perin er 33 ára og með eitt ár eftir af samningi, svo Juve fær líklega um tvær til þrjár milljónir evra fyrir.
Fabrizio Romano hefur stimplað félagaskiptin með „here we go!" stimplinum.