Ennþá meira bið verður eftir því að Aron Einar Gunnarsson spili sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili með Cardiff.
Aron hefur ekkert verið með Cardiff á tímabilinu vegna hnémeiðsla en hann byrjaði þó að æfa af krafti fyrr í mánuðinum.
Aron meiddist aftur á æfingu í þessari viku og verður ekki með gegn Manchester City um helgina.
„Aron fékk annað högg í vikunni. Ég veit ekki ennþá alvarleika meiðslanna," sagði Neil Warnock, stjóri Cardiff, á fréttamannafundi í dag.
„Við viljum hafa leiðtogahæfileika hans inni á vellinum en í sannleika sagt hafa miðjumennirnir staðið sig mjög vel miðað við hvað samkeppnin er lítil um stöður þar."
Athugasemdir