Breiðablik varð Íslandsmeistari í A, B og D liðum í 5.flokki kvenna í sumar.
A lið Breiðabliks vann KR 2-1 í úrslitaleik sem fram fór á Kópavogsvelli. Margrét Brynja Kristinsdóttir skoraði mörk Breiðabliks. Emelía Óskarsdóttir skoraði mark KR.
Breiðablik 2 vann Breiðablik 2-0 í úrslitaleik B liða sem var spilaður á Kópavogsvelli. Kristín Kjartansdóttir skoraði mörkin sem skildu að.
Í C liðum voru það Breiðablik og FH sem áttust við í úrslitum og höfuð FH ingar betur 2-0 í úrslitaleik.
Breiðablik varð svo Íslandsmeistari í D liðum eftir að hafa unnið sinn riðil.
Hér að neðan má sjá sigurliðin og silfurlið Blika í C-liðum.
Athugasemdir