Amazon bjó til heimildarþætti um Manchester City á síðasta tímabili þegar liðið hreppti Englandsmeistaratitilinn og vildu gera aðra þáttaröð á þessu tímabili, nema um Liverpool.
Stjórnendur Liverpool voru sammála um að leyfa Amazon að fylgjast með tímabili félagsins en Jurgen Klopp fékk lokaorðið og harðneitaði.
Klopp er sagður ekki hafa trú á að liðið græði neitt á því að hafa myndavélar í kringum sig allt tímabilið og telur að hegðun leikmanna breytist við komu myndavéla.
Amazon hefur því ákveðið að snúa sér að FC Bayern í leit að nýju félagi til að gera heimildarþætti um.
Athugasemdir