Elmar Atli: Aldrei verið betra
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
<i>„Þetta var geggjaður leikur. Það kom ekkert annað til en að vinna hann. Þetta var aldrei í hættu,"</I> sagði Elmar Atli Garðarsson, fyrirliði Vestra, eftir 7-0 sigur á Tindastóli í dag.
Með sigri í dag tryggði Vestri sér sæti í Inkasso-deildinni næsta sumar.
„Það var kominn tími til að vinna Tindastól, þeir hafa reynst okkur mjög erfiðir seinustu ár. Það er mjög fínt að klára þetta."
Það vantaði stöðugleika í Vestra í upphafi móts, en þegar leið á tímabilið fór að ganga betur.
„Þetta er alltaf svona hjá okkur. Við erum með tvískiptan hóp í byrjun árs og það tekur tíma að stilla saman strengi. Þetta gerðist líka í fyrra og það er það sama núna."
Hvernig er að vera fyrirliði í dag?
„Það hefur aldrei verið betra," sagði Elmar Atli að lokum.