Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. október 2018 08:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Emery: Lacazette var ekki langt frá því að fara til PSG
Alexandre Lacazette lék með Lyon áður en hann kom til Arsenal.
Alexandre Lacazette lék með Lyon áður en hann kom til Arsenal.
Mynd: Getty Images
Unai Emery tók við Arsenal í sumar en áður var hann við stjórnvölin hjá Frakklandsmeisturum PSG, Emery hefur farið nokkuð vel á stað með Arsenal.

Frakkinn Alexandre Lacazette hefur verið að spila vel fyrir Arsenal undir stjórn Emery en hann (Emery) greindi frá því á dögunum að Frakkinn hafi ekki verið langt frá því að fara til PSG þegar Emery var við stjórnvölin þar.

„Þegar ég kom til PSG þá skoðuðum möguleikana á því að fá Lacazette. Hann var hjá Lyon þá og það var ekki auðvelt að komast í samband við hann, það er erfitt fyrir PSG að kaupa leikmann frá Lyon og það er erfitt fyrir Lyon að kaupa leikmann frá PSG," sagði Emery sem er nú að undirbúa Arsenal-liðið fyrir viðureign þeirra við Leicester annað kvöld.
Athugasemdir
banner
banner