Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 21. október 2018 10:30
Arnar Helgi Magnússon
Robertson: Mikilvægt að vinna þessa leiki líka
Mynd: Getty Images
Andrew Robertson leikmaður Liverpool var ánægður eftir sigurinn á Huddersfield í ensku úrvalsdeildinni í gær. Mo Salah skoraði eina mark leiksins á 24. mínútu leiksins.

Liverpool komst upp að hlið Manchester City með sigrinum en Huddersfield er eitt af tveimur liðum deildarinnar sem enn hefur ekki náð að vinna leik. Newcastle er hitt þeirra.

Andrew Robertson leikmaður Liverpool spilaði allan leikinn og hafði þetta að segja í leikslok,

„Þetta var mjög erfiður leikur á móti góðu liði Huddersfield. Það er mikilvægt að vinna þessa leiki líka."

„Það kom okkur ekkert á óvart hversu erfiður þessi leikur var. Við þurftum að leikgreina þá vel og vera einbeittir á verkefnið. Þjálfarateymið sagði okkur að þeir væru með betra lið en taflan myndi gefa til kynna."

Liverpool mætir Rauðu Stjörnunni í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöld.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner