Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 21. október 2021 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Dembele opinn fyrir því að ganga til liðs við Newcastle
Ousmane Dembele hefur ekki spilað leik á tímabilinu
Ousmane Dembele hefur ekki spilað leik á tímabilinu
Mynd: Getty Images
Franski kantmaðurinn Ousmane Dembele er sagður hafa áhuga á því að ganga til liðs við Newcastle United, en það er Goal.com sem greinir frá þessu.

Dembele, sem er 24 ára gamall, verður samningslaus næsta sumar en samningaviðræður við Börsunga hafa gengið illa og ekki miklar líkur á því að hann framlengi samning sinn.

Hann hefur verið sterklega orðaður við enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool en nú virðist Newcastle United vera komið í baráttuna um hann.

Samkvæmt Goal.com þá er Dembele opinn fyrir því að fara til Newcastle.

Enska félagið ætlar sér að eyða háum fjárhæðum í leikmenn á næstu mánuðum eftir að Mohamed Bin Salman, krónprinsinn frá Sádi Arabíu, keypti félagið frá Mike Ashley fyrir 300 milljónir punda á dögunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner