Cristiano Ronaldo fagnaði sigri Manhester United á Atalanta vel og innilega á Twitter.
Ronaldo skoraði sigurmark United í 3-2 sigrinum í gær en mark hans kom á 81. mínútu.
Þetta var annað sigurmark hans í röð í Meistaradeildinni. United var 2-0 undir í hálfleik en náði að koma til baka á ótrúlegan hátt í þeim síðari.
„Já! Leikhús draumanna er á eldi. Við erum á lífi. Við erum Man United og við gefumst aldrei upp. Þetta er Old Trafford!" sagði Ronaldo á Twitter.
Yes! The Theater Of Dreams is on fire! We are alive! We are Man. United and we never give up! This is Old Trafford! 🔴⚪️⚫️ 💪🏽 pic.twitter.com/3rsmOBpS8H
— Cristiano Ronaldo (@Cristiano) October 20, 2021
Athugasemdir