Fotbolti.net
21.10.26 - 13:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Keflvíkingar ósáttir með niðurstöðuna - „Til skammar"

Spilað í höllinni.

Spilað í höllinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Í dag var greint frá því að leikur ÍA og Keflavíkur mun fara fram inni í Akraneshöllinni en það er vegna þess að ELKEM-völlurinn, grasvöllurinn, er ekki leikhæfur. Skagamenn eru á leið í framkvæmdir á næsta ári þar sem lagt verður gervigras á völlinn. Teknar voru prufur úr honum til rannsóknar og er völlurinn nú óleikhæfur.

KSÍ var ekki skemmt og harmar að Skagamenn hafi ekki látið sambandið vera með í ráðum. Keflvíkingar eru sömuleiðis ósáttir við niðurstöðuna og vinnubrögðin.
KSÍ harmar vinnubrögð ÍA - Engin tilraun til að gera völlinn leikhæfan
TENGT EFNI

KSÍ harmar vinnubrögð ÍA - Engin tilraun til að gera völlinn leikhæfan

„Við erum hissa á þessum vinnubrögðum, bæði að Skagamönnum detti til hugar að taka þessa ákvörðun og svo að mótanefnd KSÍ komist að þessari niðurstöðu. Það er bara til skammar," segir Jónas Guðni Sævarsson sem er yfirmaður fótboltamála hjá Keflavík.

„Það er töluvert síðan að ÍA hafði samband við okkur að þeir hefðu farið inn á völlinn (og létu vita að völlurinn yrði ekki leikhæfur) og við gerðum þeim grein fyrir því að við vildum ekki fara inn með leikinn. Við vildum frekar að þeir myndu reyna að laga það sem hægt væri að reyna laga á vellinum. Við buðum þeim líka að koma til Keflavíkur með leikinn eða að finna óháðan völl einhvers staðar í Reykjavík til að spila leikinn ef staðan væri það slæm. En að fara inn í Akraneshöllina var eitthvað sem við vildum alls ekki."

„Svo gerist ekkert í þessum hlutum og niðurstaðan kemur núna. Þá er þetta bara einhvern veginn eins og þetta er, maður er hálf orðlaus yfir þessu."


Það hafa verið veittar undanþágur með leikvelli fyrr á þessu tímabili. ÍA fékk að spila í byrjun móts inni í höllinni þegar grasvöllurinn var ekki orðinn klár og Stjarnan spilaði tvo leiki í Miðgarði þegar framkvæmdir voru á Samsungvellinum.

„Ég skil alveg í vor að völlurinn hafi ekki verið leikhæfur, hann var ekki orðinn klár eftir veturinn. Þá var örugglega búið að reyna að gera völlinn leikhæfan en það tókst ekki, auðvitað er það ekki ásættanlegt en maður skilur stöðu Skagamanna í því máli."

„Að sama skapi varð eitthvað að gerast hjá Stjörnunni, það var ekki hægt að bíða með það og undanþága var veitt."

„Í þessu tilfelli mega þessar holur alveg vera grafnar eftir síðasta leik, eða ef þurfti að gera þetta akkúrat á þessum tímapunkti reynt að ganga þannig frá því að hægt yrði að spila leikinn. En Skagamenn gera þetta viljandi, fara inn á völlinn með þessum afleiðingum. Það böggar mann mest. Þeir hefðu getað beðið með þetta, gert eitthvað annað eða spurt um leyfi áður en þeir gerðu þetta. Þeir bara gerðu þetta, reyna að fá grænt ljós á Akraneshöllina, við neitum en Skagamenn gera svo ekkert í því að reyna laga það. Svo endar það á því að það eru tveir dagar í leik og ekkert hægt að gera þegar mótanefndin kemur loksins að þessu. Það er það sem mér finnst ömurlegt í þessu máli og léleg vinnubrögð hjá Skagamönnum."

„Það þarf ekki að spila þennan leik í Akraneshöllinni, það má spila hann í Kórnum sem dæmi, á velli sem er betri. Akraneshöllin er ekki keppnisvöllur. Við heyrum líka frá sjónvarpsrétthafanum Sýn Sport að þetta setur ömurlegan standard á deildina að það sé spilað þarna inni,"
segir Jónas Guðni.
Óleikhæfur.

Óleikhæfur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grasvöllurinn á Akranesi heyrir brátt sögunni til.

Grasvöllurinn á Akranesi heyrir brátt sögunni til.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haraldur Freyr, þjálfari Keflavíkur, og Jónas Guðni.

Haraldur Freyr, þjálfari Keflavíkur, og Jónas Guðni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflvíkingar buðu Skagamönnum að spila leikinn í Keflavík.

Keflvíkingar buðu Skagamönnum að spila leikinn í Keflavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.