Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 21. nóvember 2018 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Cavani: Þið verðið að hætta þessu!
Edinson Cavani ásamt Neymar
Edinson Cavani ásamt Neymar
Mynd: Getty Images
Edinson Cavani, framherji Paris Saint-Germain í Frakklandi, ítrekaði það við fjölmiðla í gær að það væri ekkert vandamál á milli hans og Neymar.

Vinasamband Cavani og Neymar hjá PSG fór ekkert sérstaklega vel af stað en þeir rifust um að taka vítaspyrnu gegn Dijon á síðasta tímabili sem endaði með pirringskasti frá Neymar.

Mikið var rætt og ritað um málið en það hefur nú aftur ratað í fjölmiðla eftir brot Cavani á Neymar í vináttulandsleik milli Brasilíu og Úrúgvæ í vikunni.

Neymar féll þá til jarðar og virkaði afar pirraður út í Cavani en úrúgvæski framherjinn er orðinn þreyttur á að fjölmiðlar spyrji endalaust út í þetta málefni.

„Neymar? Þið verðið að hætta þessu. Þið fjölmiðlarnir eruð að skapa eitthvað úr engu," sagði Cavani.

„Fyrir utan fótboltann lifir fólk sínu lífi og innan fótboltans vinnum við allir saman að sömu markmiðum," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner